19.12.1961
Sameinað þing: 31. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2750 í B-deild Alþingistíðinda. (2503)

Þingsetning

forseti (FS):

Samkvæmt forsetabréfi, sem staðgöngumaður hæstv. forsrh. mun nú brátt birta um frestun funda Alþingis, verður þetta væntanlega síðasti fundur Alþingis á þessu ári. Ég vil þakka hv. þm. samstarfið og samvistirnar á þessu þingi. Ég óska þeim og fjölskyldum þeirra, svo og skrifstofustjóra og öðru starfsfólki Alþingis, gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýja árinu. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu. Ég vona, að við megum öll hittast heil hér á Alþingi, þegar það kemur saman aftur eftir áramótin.