18.04.1962
Sameinað þing: 58. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2756 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):

Það vill svo til að þessu sinni, að þinglausnir ber upp á síðasta vetrardag. Ég þakka öllum hv. þingmönnum fyrir veturinn og óska þeim gleðilegs sumars.

Ég hef í dag gefið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Alþingi, 82. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, miðvikudaginn 18. apríl 1962.

Gert í Reykjavík, 18. apríl 1962.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið. Ég óska þingmönnum velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið þingmenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur reis úr sætum, og forsrh., Ólafur Thors, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.