16.04.1962
Sameinað þing: 57. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í D-deild Alþingistíðinda. (3279)

104. mál, sjónvarpsmál

Karl Kristjánsson:

Með skírskotun til fyrirvara hæstv. utanrrh. sé ég ástæðu til að taka fram, að í 2. lið till. er vísað til þeirra grundvallarskilyrða, sem byggð voru upp í bréfi 26. nóv. 1954, um samninga um sjónvarpsleyfi varnarliðsins. Og í bréfi útgefnu 7. marz 1955 er vísað til þeirra grundvallarskilyrða, og af þeim ástæðum er rétt til vitnað í till. og þar með full ástæða til að segja já.