20.02.1962
Neðri deild: 52. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (595)

140. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Sjútvn. flytur brtt. við frv. til l. um breyt. á l. nr. 23 1921, um vátryggingarfélag fyrir fiskiskip, á þskj. 304. Brtt. er aðeins lítils háttar formbreyting, en hefur ekki í för með sér neina efnislega breytingu á frv. Breytingin er eingöngu um það, að á undan 1. gr. bætist orðin: „5. gr. laganna orðist svo.“ Þetta er nauðsynlegt, þar sem ekki er um það að ræða að fella 5. gr. alveg niður, heldur aðeins að gera á henni breytingu.