19.03.1962
Efri deild: 66. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 854 í B-deild Alþingistíðinda. (879)

128. mál, Kirkjubyggingarsjóður

Forseti (SÓÓ):

Þetta frv. er komið frá Nd. og var samþ. þar ágreiningslaust. Hæstv. dómsmrh., sem hefði mælt fyrir þessu frv., ef hann hefði verið við, en hann er nú erlendis, hefur óskað eftir því, að málið gengi fram og yrði vísað til nefndar. Það var menntmn. Nd., sem hafði frv. til meðferðar, og ég geri það að tillögu minni, að því verði hér vísað til menntmn.