05.04.1963
Efri deild: 68. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1497 í B-deild Alþingistíðinda. (1585)

92. mál, lántaka vegna vatnsveituframkvæmda í Vestmannaeyjum

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Efni þessa frv. er það að heimilla ríkisstj. að taka allt 12 millj. kr. lán, sem verði endurlánað bæjarstjórn Vestmannaeyjakaupstaðar til vatnsveituframkvæmda. Fjhn. hefur haft þetta frv. til athugunar, og eins og álit hennar á þskj. 505 ber með sér, mælir hún einróma með því, að það verði samþ. óbreytt.