10.04.1963
Sameinað þing: 47. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1986 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)

Þinghlé

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þm. þakka hæstv. forseta fyrir góð orð í okkar garð og óska honum gleðilegrar páskahátíðar og vona, að við hittum hann hér heilan að störfum eftir páskafríið. Ég vil biðja hv. þm. um að taka undir óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]