19.04.1963
Neðri deild: 80. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1991 í B-deild Alþingistíðinda. (1968)

Starfslok deilda

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir og hlý orð í okkar garð. Við óskum honum alls hins bezta og við þökkum honum fyrir samstarfið á líðandi þingi og fyrir hans ágætu og röggsamlegu fundarstjórn, en gott samstarf hefur í hvívetna verið milli okkar þdm. og hans sem forseta. Ég bið hv. þdm um að taka undir óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]