19.04.1963
Sameinað þing: 51. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (2736)

74. mál, brúargerð yfir Lagarfljót

Frsm. (Kjartan J. Jóhannsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur rætt þessa till. til þál. og leitað um hana umsagnar vegamálastjóra. í þeirri umsögn segir vegamálastjóri, að það sé raunar víst, að brúargerð yfir Lagarfljót við Lagarfoss muni verða nauðsynleg, ef þar verði virkjað. Auk þess telur hann, að brú þar muni að líkindum henta innanhéraðssamgöngum betur en hin brúin, sem getið er um í brtt., en telur þó eftir atvikum rétt, að bæði brúarstæðin verði athuguð. í samræmi við þessa umsögn vegamálastjóra leggur nefndin, til, að tillagan ásamt breytingartillögunni verði samþykkt.