06.05.1964
Sameinað þing: 73. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2234 í B-deild Alþingistíðinda. (1727)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 5. maí 1964.

Skúli Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Vegna anna heima fyrir og utanfarar leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi næstu vikur og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Varamaður Skúla Guðmundssonar, Jón Kjartansson forstjóri, hefur áður setið á þingi og kjörbréf hans verið rannsakað, og tekur. hann nú sæti á þinginu í forföllum Skúla sem 1. þm. Norðurl, v. Býð ég hann velkominn til starfa á þinginu.