21.12.1963
Sameinað þing: 33. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2248 í B-deild Alþingistíðinda. (1765)

Þinghlé

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir jóla- og árnaðaróskir okkur þm. til handa og þingliði öllu og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn okkar allra á þingbekkjunum, er ég flyt honum árnaðaróskir, óska honum gleðilegra jóla og góðs nýs árs og þakka honum fyrir samatarfið í forsetastóli á þeim hluta þings, sem nú er að enda við jólahléið. Ég bið menn að taka undir þessar óskir í garð hæstv. forseta og fjölskyldu hans með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]