19.03.1964
Efri deild: 62. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2249 í B-deild Alþingistíðinda. (1767)

Þinghlé

(SÓÓ):

Nú fer í hönd páskahátíðin, og eftir því sem nú lítur út fyrir, verður þetta síðasti fundur í þessari hv. d. fyrir páskahlé. Þó vil ég taka það fram, að ef eitthvað sérstakt kemur fyrir, þannig að nauðsynlegt verði, að fundur verði í deildinni annaðhvort á morgun eða á laugardaginn, þá verður það vitanlega opið, en eins og nú lítur út fyrir, þá mun þetta verða síðasti fundurinn fyrir þinghlé. Ég vil nota þetta tæktfæri og óska þeim hv. þm., sem nú fara heim til sín, kannske sumir um langan veg, góðrar ferðar og ánægjulegrar heimkomu, og öllum hv. þdm. ásamt starfsliði Alþ. óska ég gleðilegrar páskahátíðar.