14.05.1964
Sameinað þing: 80. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2254 í B-deild Alþingistíðinda. (1785)

Þinglausnir

Forseti (BF):

Ég þakka hv. 1. þm. Austf., Eysteini Jónssyni, fyrir hlý orð og vinsamleg í minn garð og minnar fjölskyldu. Einnig þakka ég hv. alþm. undirtektir þeirra og endurtek óskir mínar um gæfu og gengi þeim til handa, og ég vona, að við hittumst hér allir heilir að hausti.

Nú mun forseti Íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, ganga í fundarsalinn.

Forseti Íslands tekur til máls.