09.05.1964
Sameinað þing: 75. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í D-deild Alþingistíðinda. (3125)

145. mál, aðstoð frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins

Þorvaldur G. Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins taka fram í tilefni af því, sem hæstv. forseti sagði, að það er rétt, að það hefur komið fram brtt. við þessa þáltill. En það er svo, að það hafa líka komið fram brtt. við a.m.k. 2 þáltill., sem eru á dagskrá fundarins. Ég verð því að leyfa mér að ítreka óskir mínar um, að það gildi sömu vinnubrögð við þáltill. þá, sem ég hef borið fram, eins og aðrar þáltill.