11.10.1963
Sameinað þing: 0. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (ÓTh):

Þá er fundi fram haldið. Ég hef hugsað mér að hafa þann hátt á, ef enginn mælir því gegn, að fyrstur tali frsm. 1. kjördeildar, þá 2. kjördeildar og svo 3. kjördeildar. Ef enginn mælir því gegn, mun sá háttur við hafður, og tekur þá til máls hv. frsm. 1. kjördeildar, 5. þm. Vesturl., Benedikt Gröndal.