29.04.1965
Neðri deild: 76. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1110)

187. mál, lausn kjaradeilu atvinnuflugmanna

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er ekki nóg með, að þetta frv. sé hneyksli í sjálfu sér, heldur er líka þessi 1. umr. þess orðin hreint hneyksli hér í deildinni, þar sem hæstv. ráðh. hefur látið sig hafa það, eftir að hafa verið krafinn upplýsinga um ýmsa hluti í sambandi við þetta, að steinþegja við öllu slíku. Ég álít þess vegna, að það beri að fella þetta mál nú þegar við 1. umr., og segi þess vegna nei.

Frv. vísað til samgmn. með 23:9 atkv.