11.11.1964
Sameinað þing: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2338 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)

Athugasemdir um þingstörf

forseti (BF):

Áður en lengra er haldið dagskránni, vil ég leyfa mér að vekja athygli hv. alþm. á því, að þótt nú sé liðinn mánuður af þingtímanum, er ekki enn þá komið til nefndar í sameinuðu þingi nema eitt mál. Ég vil leyfa mér að mælast til betri samvinnu við hv. alþm. um það að koma málum til n. í sameinuðu þingi, án þess að ég vilji þó gera annað, en að minna menn á þá góðu og gömlu dyggð að vera stuttorðir og gagnorðir.