08.03.1965
Sameinað þing: 30. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2348 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (BF):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt:
Reykjavík, 6. marz 1965.
Benedikt Gröndal, 5. þm. Vesturl., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að fara þess á leit, að 2. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Hálfdán Sveinsson kennari, í forföllum 1. varamanns, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sigurður Bjarnason,
forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Fyrir liggur einnig svo hljóðandi bréf frá Pétri Péturssyni:
„Reykjavík, 27. febr. 1965.
Með því að ég er á förum til útlanda í opinberum erindum, er mér ókleift að taka sæti Benedikts Gröndals á Alþingi sem varamaður hans.
Virðingarfyllst,
Pétur Pétursson.
Til forseta neðri deildar Alþingis,
Reykjavík.“
Þá liggur einnig fyrir kjörbréf, útgefið af yfirkjörstjórn í Vesturlandskjördæmi til handa Hálfdáni Sveinssyni og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. – [Fundarhlé.]