04.05.1965
Sameinað þing: 46. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2353 í B-deild Alþingistíðinda. (2130)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 3. maí 1965.

Davíð Ólafsson, 6. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og mun ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að vegna forfalla 2. varamanns landsk. þm. Sjálfstfl. taki Ásgeir Pétursson sýslumaður sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta Sþ.“

Fyrir liggur símskeyti frá 2: varamanni landsk. þm. Sjálfstfl., á þessa leið:

„Get ekki mætt á Alþ. sökum mikilla anna hér heima. — Hermann Þórarinsson.“

Enn fremur liggur fyrir kjörbréf Ásgeirs Péturssonar og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]