11.05.1965
Neðri deild: 90. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2368 í B-deild Alþingistíðinda. (2192)

Starfslok deilda

Á 90. fundi í Nd., 11. maí, mælti forseti (SB):

Þá er dagskrá þessa fundar þrotin. Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. að þessu sinni, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. góða og ánægjulega samvinnu við mig sem forseta á liðnum vetri. Jafnframt leyfi ég mér að óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra alls velfarnaðar. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu.

Að lokum vil ég láta þá ósk í ljós, að við megum hér allir heilir hittast á nýju þingi.