12.05.1965
Sameinað þing: 54. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2372 í B-deild Alþingistíðinda. (2198)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirson):

Ég hef í dag gefið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 85. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, miðvikudaginn 12. maí 1965.

Gjört í Reykjavík, 12. maí 1965.

Ásgeir Ásgeirsson,

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkv. þessu bréfi, er ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því; að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið. Ég óska þingmönnum velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp, og forsrh., Bjarni Benediktsson, mælti: „Lengi lifi forseti vor og fósturjörð.“ Tóku þm. undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.