12.04.1965
Neðri deild: 67. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (679)

104. mál, landgræðsla

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ed. hefur gert smávegis breytingar á þessu frv., sem eru á þskj. 404. Það eru breytingar við 2., 3., 8. og 40. gr., eins og sjá má á þskj. Þessar breytingar eru ekki veigamiklar, og ég hefði viljað mælast til, að hv. Nd. féllist á að samþykkja frv. með þessari breytingu, sem hv. Ed. hefur gert.