16.12.1965
Neðri deild: 34. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (243)

51. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég hef ekki gefið út nál. varðandi afgreiðslu þessa máls, en afstaða mín til þess hefur komið fram í umr. áður á þinginu. Hér er um að ræða eitt af mörgum skattlagningarfrv. ríkisstj. að þessu sinni, og ég er andvígur þeirri stefnu, sem fram kemur í flutningi þeirra frv. og því andvígur þessu frv. og legg til, að það verði fellt.