29.03.1966
Neðri deild: 61. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 830 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

135. mál, mat á sláturafurðum

Frsm. (Gunnar Gíslason):

Herra forseti. Hv. 6. landsk. þm. (RJ) hefur flutt hér brtt. við eina þeirra brtt., sem landbn. flutti við frv. um mat á sláturafurðum og samþ. voru hér í hv. d. í gær. Mér finnst hér vera um svo litla brtt. að ræða, að ég sé ekki ástæðu til þess að vera að fresta málinu hennar vegna. Að sjálfsögðu hefur landbn. ekki tekið neina afstöðu til þessarar till., því að hún var flutt nú á stundinni, en ég geri ekki ráð fyrir því, að landbn. hafi neitt við hana að athuga, og ég legg til, að málið verði afgreitt nú.