18.04.1967
Neðri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (1072)

179. mál, lántaka vegna framkvæmdaáætlunar fyrir árið 1967

Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft mál þetta til meðferðar, en ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins. Eins og fram kemur í nál. meiri hl. fjhn. á þskj. 575, leggur meiri hl. til, að frv. verði samþ. óbreytt.