13.12.1967
Neðri deild: 38. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1663 í B-deild Alþingistíðinda. (1517)

29. mál, sala Hóls í Ölfusi

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Landnámið, jarðeignadeildin og öll landbn. Nd., þ. e. a. s. þeir, sem á fundi voru, mæla með, að þetta frv. verði samþ., og geri ég ráð fyrir, að það sé óhætt fyrir hv. d. að fylgja dæmi þessara aðila og samþykkja frv.