29.02.1968
Efri deild: 64. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1849 í B-deild Alþingistíðinda. (1861)

107. mál, síldarútvegsnefnd

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Þetta mál er nú flutt af n. og hefur þess vegna ekki formlega verið vísað til n. Eigi að síður tel ég heppilegt, að n. fjalli um þetta mál nokkru ítarlegar en gert hefur verið til þessa, m.a. af því, að það hafa komið fram brtt. við frv. og jafnvel hafa verið boðaðar fleiri brtt., og það væri æskilegt, að nm. gætu athugað þetta nokkru nánar og það væri kannað, hvort hægt væri að einhverju leyti að samræma þær till., sem fram hafa komið til breytingar á því frv., sem fyrir liggur. Mér fyndist þess vegna eðlileg vinnubrögð, að málinu væri frestað að sinni og sjútvn. d. tæki málið til yfirvegunar.