19.12.1967
Efri deild: 40. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2223 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)

Þingfrestun og þinghlé

Ólafur Jóhannesson:

Ég vil í nafni okkar þingdeildarmanna þakka hæstv. forseta hlýjar óskir í okkar garð. Um leið vil ég þakka honum fyrir lipra og réttláta fundarstjórn og ánægjulegt samstarf, það sem af er þessu þingi. Ég vil svo, og ég veit að ég mæli þar fyrir munn allra þingdeildarmanna, óska honum og hans fjölskyldu gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýs árs. Megum við öll heil hittast aftur hér að jólaleyfi loknu. Ég vil biðja hv. þdm. að rísa úr sæti og taka undir þessi orð mín. — [Þm. risu úr sætum.]