05.04.1968
Sameinað þing: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1134 í B-deild Alþingistíðinda. (979)

141. mál, fjáraukalög 1966

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur að venju yfirfarið frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1966, sem hér liggur fyrir. Nefndin hefur fundið eina smávægilega skekkju í frv., sem hún leggur til, að verði leiðrétt. Að öðru leyti leggur fjvn. til, að frv. verði samþ. óbreytt.