02.05.1969
Neðri deild: 87. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (1034)

21. mál, fjallskil o.fl.

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta frv. kemur frá Ed. og hefur tekið þar ofurlitlum breytingum frá því að það var afgreitt hér í þessari hv. d., og það mun vera samkv. þingsköpum, að n., sem hefur fjallað um frv., láti álit sitt í ljós um það.

Landbn. Nd. ræddi þetta mál í morgun og bókaði hjá sér, að hún féllist á þær breytingar, sem gerðar voru þar, og leggur til og mælir með, að það verði samþ. eins og það kemur frá Ed.