04.03.1969
Neðri deild: 60. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (602)

131. mál, yfirráðaréttur íslenska ríkisins yfir landgrunninu

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Allshn. hv. deildar hefur haft mál þetta til meðferðar og rætt það á fundi sínum. Á fund nefndarinnar komu Gunnar Schram, deildarstjóri í utanrrn., og Jón Jónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, og svöruðu ýmsum fsp. nm. Að lokinni athugun á frv. mælir n. eindregið með, að frv. þetta verði samþ. óbreytt.