03.03.1970
Neðri deild: 54. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (2188)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

forseti (MÁM):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Þar sem ég er á förum til útlanda og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjavík, Jón Snorri Þorleifsson trésmiður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Magnús Kjartansson,

6. þm. Reykv.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Jóns Snorra Þorleifssonar trésmiðs hefur áður verið rannsakað og tekur hann því sæti hér í d. og er boðinn velkominn til starfa.