04.05.1970
Sameinað þing: 53. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1740 í B-deild Alþingistíðinda. (2242)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn):

Í dag hefur verið gefið út svofellt bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 90. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, mánudaginn 4. maí 1970.

Gjört í Reykjavík,14. maí 1970.

Kristján Eldjárn.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Óska ég alþingismönnum velfarnaðar og þjóðinni allra heilla og bið þm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp, og forsrh., Bjarni Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“

Var undir þau orð tekið með ferföldu húrrahrópi.