07.04.1970
Neðri deild: 69. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í C-deild Alþingistíðinda. (2495)

8. mál, Seyðisfjarðarkaupstaður

Fram. minni hl. (Jón Kjartansson) :

Herra forseti. Ég kem bara í ræðustólinn til að lýsa því yfir, að við tökum dagskrártill. til baka til 3. umr., og vona ég, að málinu verði frestað og það afgr., eftir að sýslunefndin hefur haldið sinn fund. Þá verður þetta stóra mál að litlu máli, áður en þingi lýkur.