01.04.1970
Sameinað þing: 42. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í D-deild Alþingistíðinda. (3864)

924. mál, ríkisábyrgðir

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. fjmrh. fyrir svör hans og þá skýrslu, sem hann hefur lagt hér fram. Ég tek undir það, að hún muni fullnægja því, sem um var spurt, og vil endurtaka það, að fsp. þessi er fyrst og fremst borin fram til þess að fá á þessum málum skýringar. Það er nauðsyn, þar eð þær eru oft á dagskrá og eru ekkert síður þeim í hag, sem um þessi mál fjalla, heldur en hinum. Og ég þakka svörin.