24.03.1971
Neðri deild: 68. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)

292. mál, þingfararkaup alþingismanna

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að leggja til, að frv., sem hér liggur fyrir, verði vísað til fjhn., enda er slíkum málum yfirleitt þangað vísað. Að öðru leyti vil ég taka það fram í þessu sambandi, að ég lít svo á, að það fyrirkomulag, sem hér er stungið upp á, ef að lögum verður, sé í raun og veru löggjöf til bráðabirgða og að fyrirkomulagið til frambúðar. eigi að vera það, að kjaradómur ákveði laun alþm. Skal ég svo ekki að öðru leyti hafa afskipti af þessu máli.