17.02.1971
Efri deild: 49. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2148 í B-deild Alþingistíðinda. (2303)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (jR):

Mér hefur borizt eftirfarandi bréf frá Bjarna Guðbjörnssyni, 3. þm. Vestf.:

„Þar sem ég er nú í sjúkrahúsi og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Steingrímur Hermannsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Ég leyfi mér að bjóða Steingrím Hermannsson velkominn til starfa hér í hv. þd.