11.12.1970
Neðri deild: 29. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í C-deild Alþingistíðinda. (2575)

120. mál, almannatryggingar

Utanrrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Þetta frv. er aðeins nokkurs konar fylgifiskur með því frv., sem ég var að leggja fram hér áðan um Innheimtustofnun sveitarfélaga og fjallar um þá formbreytingu, sem verður á 1. um almannatryggingar við það, að tryggingarnar skulu nú snúa sér til Innheimtustofnunar sveitarfélaganna, en ekki til sveitarfélaganna sjálfra, eins og verið hefur að undanförnu. Þetta er aðeins formbreyting, sem leiðir af samþykkt hins frv.

Ég vil leyfa mér að leggja til, herra forseti, að málinu verði, að þessari umr. lokinni, vísað til 2. umr. og hv. heilbr.— og félmn.