28.10.1970
Sameinað þing: 6. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í D-deild Alþingistíðinda. (4166)

319. mál, úthlutun fjárveitingar til jöfnunar námskostnaðar skólafólks

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. menntmrh., hvaða rök liggja fyrir því, að nemendur í gagnfræðaskóla, sem heimavistar njóta, eru alveg hafðir út undan við úthlutun þess fjár, er hér um ræðir.