14.04.1972
Efri deild: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í C-deild Alþingistíðinda. (3259)

181. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Bragi Sigurjónsson:

Herra forseti. Ég vil vekja athygli deildarinnar á því, að hér er stigið spor aftur á bak frá því, sem samþykkt var í fyrra. Þá var samþykkt mjög svipað frv. og er lagt til nú af hálfu frv.-flytjenda, en með því að binda þetta svo stuttan tíma, aðeins í ár, frá 1. maí til 30. sept., þá er það spor aftur á bak frá þeim lögum, sem nú eru í gildi, sem eru óbundin tímamarki, og ég lýsi því hér með yfir, að ég verð á móti þessari breytingu.