11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í D-deild Alþingistíðinda. (3443)
92. mál, eldisstöð fyrir lax og silung á Norðurlandi
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að færa hv. allshn. þakkir fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli. Ég flutti hér fyrr í vetur brtt. við þetta mál á þskj. 138, og hv. allshn. hefur tekið þá brtt. til greina og skilað áliti á þann veg að breyta tillgr. nákvæmlega í það form, sem brtt. mín fjallaði um. Fyrir þetta vil ég þakka hv. n. og þá að sjálfsögðu draga mína brtt. til baka.