20.12.1972
Efri deild: 39. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1633 í B-deild Alþingistíðinda. (1213)

111. mál, samningur um aðstoð í skattamálum

Frsm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til athugunar frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um aðstoð í skattamálum. N. hefur athugað frv. og leggur einróma til, að það verði samþ. óbreytt. Ekki hefur unnizt tími til að prenta nál., en nm. allir hafa undirritað nál. þetta, sem ég lýsti nú.