27.03.1973
Sameinað þing: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2797 í B-deild Alþingistíðinda. (2164)
189. mál, endurbætur á talsímasambandi milli Reykjavíkur og Vesturlands
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin, og ég vænti þess, að hann geri sitt ítrasta til þess, að sveitirnar fái sjálfvirkt símakerfi, áður en langir tímar líða, jafnframt því, sem bætt verði þjónustan þar, sem sjálfvirku kerfi hefur þegar verið komið á.