31.10.1972
Sameinað þing: 10. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (223)

268. mál, eiturlyfjamál

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. og dómsmrh. fyrir svörin. Ég tel þau staðfesta, að þörf er á aukinni árvekni í þessum efnum, og þess vegna fagna ég þeim síðustu ummælum hans, að sérstakar ráðstafanir séu á döfinni í þessum efnum.