02.04.1973
Efri deild: 81. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2934 í B-deild Alþingistíðinda. (2317)

202. mál, almenn hegningarlög

Fram. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Frv. þetta fjallar um afbrot í sambandi við svokölluð flugvélarán og refsingar við þeim verknaði. Efni frv. er í samræmi við alþjóðasamninga, sem Íslendingar eiga aðild að og hafa fullgilt. Hegningarlaganefnd hefur samið frv. Allshn. hefur athugað það, ekki fundið neitt athugavert og mælir með samþykkt þess.