12.04.1973
Efri deild: 91. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3388 í B-deild Alþingistíðinda. (2926)
96. mál, sala Grenivíkur, Svæðis, Höfðabrekku og hluta af landi Borgar
Frsm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Það er aðeins smábreyting, sem landbn. leggur til, að verði gerð á frv. þessu, þ.e. að aftan við 1. gr. bætist: „Jarðirnar má ekki endurselja öðrum en ríkissjóð.“ Þetta er að verða föst regla með þær jarðir, sem seldar eru af ríkinu, að það hafi forkaupsrétt, ef til sölu kemur á nýjan leik.
Till. þessi er of seint fram komin og auk þess skrifl. Hún er í prentun. Vil ég biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni.