17.12.1973
Efri deild: 42. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1482 í B-deild Alþingistíðinda. (1339)

167. mál, Norðurlandasamningur um hjúskap, ættleiðingu og lögráð

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Frv. það, sem liggur hér fyrir til umr., fjallar um að veita ríkisstj. heimild til að láta öðlast gildi samkomulag milli Norðurlandaþjóðanna fimm um breytingu á Norðurlandasamningi frá 6. febr. 1931 um alþjóðleg einkamálaréttarákvæði um hjúskap, ættleiðingu og lögráð.

Um efni frv. leyfi ég mér að vísa til framsöguræðu hæstv. dómsmrh. fyrr í dag og ítarlegrar grg. um málið, sem fylgir frv.

N. hefur fjallað um frv. og mælir með samþykkt þess. Fjarstaddir voru afgreiðslu málsins hv. þm. Eggert G. Þorsteinsson og Magnús Jónsson.