15.03.1974
Efri deild: 79. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2865 í B-deild Alþingistíðinda. (2572)

210. mál, umferðarlög

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Mér hefur verið bent á það, að til samræmis við lögin væri eðlilegra, að í brtt. minni á þskj. 482 stæði í stað „eiganda dráttartækis“ o.s.frv.: eiganda skrásetts dráttartækis. Og er greinin svo óbreytt að öðru leyti. Ég geri því að skriflegri till. minni, að þessi breyting verði á umræddri brtt. minni gerð.