24.04.1974
Sameinað þing: 78. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3925 í B-deild Alþingistíðinda. (3473)

130. mál, veitinga- og gistihúsarekstur að vetrarlagi utan þéttbýlissvæða

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Sem flm. þessarar till. vil ég þakka hv. fjvn. fyrir þá afgreiðslu, sem hér hefur verið lýst frá n., og vænti þess, að till. nái samþykki á yfirstandandi Alþ. Í framhaldi af því lýsi ég fyllsta trausti á, að hæstv. samgrh. láti fram fara þá athugun, sem till. greinir, og af því megi hljótast, að samræmdar aðgerðir verði gerðar til að ráða bót á þeim vanda, sem till. fjallar um.