24.04.1974
Sameinað þing: 78. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3925 í B-deild Alþingistíðinda. (3477)

30. mál, kennsla í haffræði við Háskóla Íslands

Frsm. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Fjvn. hefur haft þetta mál til meðferðar, og frá því er að segja, að samkv. till. fjvn. við fjárl. í vetur fyrir liðandi ár samþykkti Alþ. að veita fé til þess að stofna kennsluembætti í haffræði við Háskóla Íslands. Af þeim sökum telur n., að markmiði þessarar till sé fullnægt, og leggur til einróma, að till. verði vísað til ríkisstj.